er búin með sumarfríið mitt í bili.. það eru smá líkur á að maður kíkki í útland í haust.. samt bara lauslega rætt um það ekki neitt harð ákveðið.. well see..
fór samt í tvær súper ferðir í fríinu og vildi svo til að ég byrjaði fríið á annari og endaði það með hinni heh.. lítið sem skeði í millitíðinni annað en að sofa lengi og slappa af .. og fá smá í bakið með því.. eníhúú..
ferð nr.1 var ferð á flúðir.. sumarbústaður og huggulegheit með Fjölni, Berglindi, Daða og englunum þeirra tveim :) .. allt alveg magnað þarna, aldrei verið í eins góðum bústað nokkurntíma á ævinni! hefði samt mátt vera aðeins betra veður og svo var smá veikindi hjá Mikael Mána, en það minnkaði nú ekki fjörið við það :) .. vona allavega að allir hafi haft það sem best bara :P
ferð nr.2 var ferð á þórsmörk með Bergþóru, Gest og vinafólki þeirra :) .. það var alveg magnað! fullt af nýjum hlutum til að prufa þar.. til dæmis fjallganga....ok, þetta var kannski ekkert fjall sem við fórum á EN miðað við mína líkamsrækt uppá síðkastið þá var þetta eins og FJALLGANGA! lungun ætluðu bara út hehe.. mjög smart.. það var á laugardeginum, svo ætluðum við í sund í rosalega flottri laug sem er útí rassgati.. man bara ekkert hvað hún heitir en hún er í mjög mörgum auglýsingum :P allavega svo sprakk dekk sem tafði okkur í laugina ..og í stuttu máli þá var maður að nafni Böddi bjargvættur dagsins :) .. alveg magnaður kall hehe :)
en ég hef ekkert frumlegra að skrifa í augnarblikinu en það sem ég gerði í fríinu.. aldrei að vita hvaða bull kemur hja manni næst ;)
tata for now
[diskurinn: MGMT- bara góður disklingur! *****]
02. júlí 2008 klukkan 00:41
Kristín Þorgeirsdóttir 2 athugasemdir
það kviknaði aldeilis á pælaranum hjá mér í dag... með hjálp kóngs pælingana, hans Sveinars.. það sem hrundi þessu öllu af stað var pælingin um það hvað sumt fólk er líkt vissu dýri.. og þarmeð fóru hlutirnir að snúast..
Við komumst að þeirri niðurstöðu að Helga, samstafrskona okkar, svipar á vissan hátt til kisu.. og að sveinar væri af stóðhestakyni .. en það varð engin niðurstaða fengin með mig.. nema það að ég væri einhverskonar rándýr.. og þá trúlega einhversona fugl ... (ekki alveg að gera sig þegar það er köttur á heimilinu.. soldið svona hagsmunaárekstur þar heh)
anyhúú... hvaða dýr myndir þú halda að þú værir eða einhver vinur/vinkona þín?
gaman að fá smá innlegg ;)
svo fór maður að spá í því hvað það er skondið að stundum er alveg rosalega sterkur svipur með fólki og þeim dýrum sem það kýs að eiga sem gæludýr :) .. aðalega með hunda samt.. eða allavega hef ég mest séð það...
pæl pæl pæl
ATH! myndin sem er efst á síðunni minni fann ég á google! og takið eftir að það stendur Stína Stuð á miðanum á henni! hoho ..finnst mjög fyndið já
tata for now
lag dagsins: ( ALLUR diskurinn sem lögunum úr myndinni JUNO! )
14. mars 2008 klukkan 20:54
Kristín Þorgeirsdóttir 3 athugasemdir
ÉG ER SVO GLÖÐ! :D .. haldiði ekki að hann Fjölnir hafi látið undan Stínu sinni og samþykkt að við myndum fá okkur kisu! :D ... vorum að fara að finna æti í Bónus þegar ég sá auglýsingu um fjórar átta vikna læður sem vantaði heimili og það var ekki sparað sakleysissvipinn eða nokkra aðra klæki til að ná til Fjölnis með þetta.. og viti menn það var hringt í fólkið og við fórum til þeirra rétt eftir mat.. og eignuðumst þar með hana Emmu okkar! :D .. hún er soddan rassgat.. en hún er svo lítil og með lítið hjarta að það þarf ekki mikið til að skjóta henni skelk í bringu. En það fer samt ekki á milli mála að hún er líka nokkuð mikiðrándýr.. tær eru mjög vinsælar og síðurnar á manni.. sérstaklega þegar maður er sofandi.. svo er hún mjög forvitin um augu og augnlok... hún er alltaf að klappa mér á augnlokin.. og alltaf þegar ég á síst von á því hehe..
algert kjánapangs *væmngelgj*
en þá á ég mitt fyrsta gæludýr :D ..
mafla out lag dagsins **[borgin-hjálmar + kaffibrúsakarlarnir.. sneeelld ]**
03. febrúar 2008 klukkan 16:03
Kristín Þorgeirsdóttir 7 athugasemdir
hvað ætti maður að gera í sumar? er málið að prufa eitthvað nýtt og skreppa til framandi slóða í hitabylgju og læti.. eða fara til DK annað sumarið í röð og skoða sig meira um þar (er reyndar alveg nógu heitt þar á sumrin fyrir minn smekk heh ) ... eða bara vera heima á klakanum...? maður spyr sig..
Ég veit samt bara ekkert hvert annað mann myndi langa í sumarfríinu en til DK .. ef það yrði þá farið í utanlandsferð.. einhver meðmæli með einhverjum stöðum?
maður er kannski frekar tímanlega í þessum pælingum.. en áður en maður veit af þá verður kominn maí þannig að ég ætla ekki að láta það bíta mig í rassinn!
mig langar samt svo rosalega að sjá llama dýr, tígrisdýr og mörgæs (helst ekki í sama búri samt heh) .. þannig að hvert sem maður færi þá YRÐI að vera góður dýragarður svo að ég geti séð öll þessi dýr..þrengir aðeins valið kannski...?
væri fyndið samt að sjá þau öll lifa saman í sátt og samlyndi í litlu búri.. maturinn mætti bara aldrei seinka uppá að tígrinn færi ekki að freistast eitthvað..
ooooooooooooooookey.. þá er miðvikudagssteypan komin á netið..
nennessekki
mafla out
**[lag dagsins: red egypt-bloodgroup]**
23. janúar 2008 klukkan 09:26
Kristín Þorgeirsdóttir 3 athugasemdir
Jæææja! þá eru öll ósköpin að verða búin og fólk farið að verða tilbúið með allt draslið fyrir blessuð jólin! ég og Fjölnir rétt náðum að leggja lokahönd á að henda gjöfunum í pappír í gærkveldi/nótt eftir að hann sótti mig eftir tjaaa.. 14 1/2 tíma vakt.. *ÞREEEYTTTTUR!!* og nu er bara lokaspretturinn eftir af vinnunni.. bara 3 tímar svo leggja sig, svo sturta, svo jólaföt, svo matur hjá múttu.. djöbblasins hvað það verður næs...
en ætlaði bara að henda inn jóla kveðju.. vonandi sér maður eitthvað af fólkinu sinu yfir hátíðarnar... er að vona að orkublundurinn minn á eftir verði það hressandi að ég muni ekki þurfa að sofa öll jólin af mér!
anyhow
vinnavinn
mafla out
24. desember 2007 klukkan 10:07
Kristín Þorgeirsdóttir 3 athugasemdir
jæja, þá er ég bara komin með þræl, en bara í einn dag :) .. ég fór sumsé í óvissuferð með vinnuni um helgina og skemmti mer konunglega þar .. það var byrjað á að skipta okkur uppí 4 lið Gulir, Rauðir, Bláir og grænir. mér var skipað í gula liðið ásamt öðrum snillingum. Það var farið í spurningakeppni, innkaupaleik í halarófu, ratleik um miðbæinn, spurningaleik um ísland,byggingaleik og látbragsleik. Og fóru Gulir með sigur af hólmi efitr þessar þrautir og máttum við því velja okkur einn þræl á mann (í einn dag) úr liðinu sem endaði með fæst stigin. Brilliant! Ég valdi mér hann Gumma sem er algert yndi. En nu þarf karlgreyjið að koma til min á glerártorgið þennan eina dag, færa mér kaffi/kakó/ orsumshit 2 á dag (minnir mig) fara tvær snattferðir útí bæ fyrir mig, nudda á mér axlirnar 2 OG gefa mer morgunmat þennan dag :) og það skemmtilegasta er að vegna þess að hann vinnur niðrí hafnarstræti þá þarf hann að koma alltaf útá glerártorg ef ég hringi í hann og segi honum að gera eitthvað af þessum hlutum :) hohoho og ekki má gleyma ða penninn ætlar að bjóða Gular liðinu út á borða í hádeginu á föstudaginn næst á Friðrik fimmta :D Stína í góðum málum! ;)
En partur af óvissuni miklu var að á milli tveggja þrauta fórum við uppí rútu og allir útí sveinbjarnagerði þar sem okkar beið þetta fína kveldverðahlaðborð og æðislegheit :)
svo fór stína bara í bæinn snemma. Lét Fjölni og hans fólk sækja mig og ég fór svo bara beint uppi rúm hehe.. rosalegur djammari á ferð krakkar minir..maginn minn fór bara í einhverja fílu eftir eftirréttinn.. semsagt bún að finna það ut að tveir yfirfullir diskar af kjöti og meðlæti + heit súkkulaði kaka með ís + doldill slatti af alkaholi = ekki neitt sérstaklega góð blanda fyrir mallann.
En þetta endaði allt vel :) .. var svo sagt daginn eftir að það eina sem ég "missti" af voru ein og önnur ofbeldisverk niðrí bæ.. sem er svosem ekkert frásögufærandi þessa dagana á Akureyri miðað við að fólk virðist bara vera í hættu með að vera stungið ef það kikir út á lífið..
En nuna standa yfir víðamiklar íbúðarleitir um akureyri... djöbblasins hvað það er nú leiðinlegt verk krakkar! sjáum hvað gerist þegar næsta dagskrá kemur út hehe.. en ef einhver veit af tveggjaherbergja íbúð til leigu endilega hafa samband takk!
En nóg um þetta allt :)
Mafla out
**Lag helgarinnar/dagsins: let me think about it- fedde le grand og einhver gella **
05. nóvember 2007 klukkan 13:29
Kristín Þorgeirsdóttir 5 athugasemdir
þá er maður kominn aftur til landsins. helgarferð til Glasgow að baki og allt gekk mjög vel fyrir sig :) .. ekkert smá gaman þarna maður!
skrapp semsagt með Birnu og Höllu vinkonum minum þangað, gargandi snilld!
partur af þvi sem ég sá/kynntist í þessari ferð:
* fuuuullt af skotum, surðrise surprise
*að það er hægt að skera kartöflur niður í stóra bita, skella þeim í djæupsteikingu og borða með túnfisksalati
*að það er mjög líflegt bæjarlíf þarna, fullt af götulistafólki og shopaholicum lika..
*Skotar eru mjög kurteisir... allavega þeir/þau sem maður hitti á
*skoska getur verið mjög óskiljanleg, jafnvel þó þeir tali hægt fyrir mann hehe
*Thule er besti bjór í heimi!
*of margir mojito eru ekki góð blanda við marga bjóra og eitt glas af captein i coke.. ehm
*Elvis býr í glasgow! hann er bara hættur í hvíta glimmergallanum og kominn i gallbuxur og leðurjakka .. það var illa fyndin sjón hahahaha (útskýring neðar í blogginu)
*skoskur/breskur morgunmatur er ógiiissslegur
*ÞAÐ ER TIL MARS MUFFINS!!!! ef einhver herna vissi að það væri til, SKAMM að hafa ekki sagt mér það fyrr!
*sá skota í skotapilsi, kunni bara ekki við að gá undir það svo að sú kenning á eftir að vera sannreynd hjá mér ennþá! efast um að ég fari að gera það samt.. nema Fjölnir fái sér skotapils hoho
*það er gjörsamlega stórhættulegt að vera í verslununum þarna! maður bara eyðir og eyðir og eyðir!
*svona skoskir gamlir kastalar eru alveg heavy krípy :O en mjög svo flottir lika ;)
*það er alveg rosalega gott að vera komin heim!
en já elvis gaurinn bwahahahaa.. í stuttu máli þá vorum við að horfa á götulistamenn í glasgow, tveir afrískir gaurar að berja á drumbur og mjög fullorðinn maður að spila á sekkjapípu með þeim (og já hann var í öllu maður! pilsið, jakkinn, sokkarnir, hatturinn.. en brókin? hver veit..) það var rosalega flott hjá þeim.. en svo mætir allt í einu BLINDfullur kall hjá þeim.. hann stendur varla í lappirnar, og fer að hreyfa sig eins og elvis! .. en eina leiðin að maður kveikti á perunni að hann væri að herma eftir elvis var vegna þessa að hann var með svipaða greiðslu og alltaf að lifta kraganun á peysunni sinni upp! .. og þarna stóð maðurinn og gerði sig að þvílíku atlægi að það hálfa hefði verið nóg! dansandi elvistaktana með undirspil sekkjapípu og afríkudrumbna! súrealískt? tjaa ég held það nú! fyndið? ekki spurning ;)
en já þetta var yndisleg ferð, en mikið rosalega er maður feginn að vera kominn heim líka!
mafla out
lag dagsins: stolt syglir skútan mín - veit ekki hverjir flytja það... en rosalega fyndið ;)
10. október 2007 klukkan 15:43
Kristín Þorgeirsdóttir 4 athugasemdir
hver vill gefa mér svona dásamlegan, kúrinn,yndislegan, hnoðinn kettling? er komin með rosalega þörf í að eiga svona hnoðbolta til að vera góð við :)
svo rosalega ómótstæðileg dýr
má vera hvernig sem er á litinn ..
samt, betra að láta það bíða með að fá sér kött þar til maður er búinn að ákveða eitthvað fast heimili.. ekki ætla ég að vera inni á mömmu og pabba alla ævi.. + að köttur yrði trúlega ekkert vel liðinn á heimilinu.. þó svo að það séu til 3 kanínur, einn froskur og ég veit ekki hvað margir fiskar.. og allt heitir þetta nöfnum eins og hnoðri, krútti, knúsi, sykurpúði og svo framvegis...
tek það sterklega fram að kisinn sem ég mun fá mér verður ekki með svona sykurhúðað nafn.. það er nóg að eiga bangsa úr æsku sem bera slík nöfn heh
samt finnst mér vera einhver smá klikkun í því að vera að fá sér hreinræktaðan kött uppá einhverja tugi þúsundkalla.. frekar að taka þá að sér sem að þurfa heimili og hlýju .. *væmn*
love it all to bitts
einhverjar tillögur að kisunafni?
lag dagsins: * never leave your heart alone - butterfly boucher *
19. september 2007 klukkan 13:27
Kristín Þorgeirsdóttir 16 athugasemdir
hahaha .. það hefur verið eitthvað sprell í gangi hjá tölvunni minni nuna í síðustu færslu.. það var allavega ekki ætluninn að setja færsluna 3 inn heh :p .. smá gjörningur bara ;)
mikið var æðislegt í DK! langar aftur nuna strax .. kannski að maður skelli sér í helgarferð fyrir jólin ef peningurinn leyfir.. það væri grand.. annars bara gott game í gangi.. byrjuð að vinna aftur og svona .. alltaf jafn hresst
svo á mighty mighty morty, queen of all party afmæli innan skamms ;) .. þá á maður víst að fara ða grafa upp litríka jogging galla og annað fínerí fyrir það teiti.. semsagt eitthvað 90' þema í gangi og mun svo halda áfram í sjallanum sama kveld .. svo að maður verður eins og mesti bjáni niðri í bæ á föstudagskveldið .. úllala.. maður á eftir að þurfa ða slá frá sér biðlana hoho .. eða nei nei frekar hæpið hehe lika eins gott, engin þörf á því ;) .. ég verð nu samt að vera í einhverjum jogging galla bara svo að ég geti sagt .. " ...svona jogginggallar eru víst töff!" og hana nú jón gnarr!
en talandi um afmælisbörn, þá er min momor (móðurmóðir mín) 80 ára ung í dag! hún er alltaf sama gellan ;) eitt gott klapp fyrir þvi
mafla out
lög dagsins: ALLIR cocorosie diskarnir
05. september 2007 klukkan 12:28
Kristín Þorgeirsdóttir 12 athugasemdir
þá er maður i danaveldinu að spóka sig .. búið að vera þvílíkt gaman og maður er búinn að hafa það hrikalega gott :)
er núna stödd í heima #3 (heima #1 er ásvegurinn og heima#2 er langamýri 7 :p)
åarhus beibí.. heimili Úllu systur og co .. var að endavið að klára dinner að hætti Stínu.. bara geggjað gott hjá mér ;) .. og ligg nuna á maganum að melta öll herlegheitin..
er búin að vera að kafna úr hita nær alla ferðina, nema á milli timans sem að sólinn er að setjast og rétt áður en muggið lætur sjá sig (óvelkomnar flugur sem að bíta mann svo að maður fær kláðabólu og deyr nærri þvi ur kláða, NOT my friends)..
en nenniggi meira man... ætla að fara að kúra
tata for now (K)
13. ágúst 2007 klukkan 18:23
Kristín Þorgeirsdóttir 3 athugasemdir